Fotbolti.net
02.09.26 - 15:58
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Sá yngsti í sögu Bestu til Malmö

Sá yngsti í sögu Bestu til Malmö
Canon

Mynd: Aðsend

Novak Tufegdzic er genginn í raðir sænska félagsins Malmö frá Val. Novak er fæddur árið 2012 og má því ekki skrifa undir samning við félagið.

Í síðasta mánuði sagði Fótbolti.net frá því að eldri bróðir Novaks, Stefan, væri búinn að semja við Malmö en hann var sömuleiðis leikmaður Vals. Sænska félagið hefur haft augastað á þeim bræðrum síðustu misseri.

Þeir Stefan og Novak eru synir Srdjan Tufegdzic - Túfa - sem stýrði Val í rúmt tímabil eftir að hafa tekið við í ágúst 2024. Hann var látinn fara eftir tímabilið 2025.
Valsstrákur slær metið sem yngsti leikmaðurinn í sögu deildarinnar
TENGT EFNI

Valsstrákur slær metið sem yngsti leikmaðurinn í sögu deildarinnar

Novak varð í sumar yngsti leikmaður í sögu efstu deildar þegar hann var í byrjunarliðinu gegn Fram í júlí. Novak var þá 14 ára og 26 daga gamall.

Novak spilaði með 2., 3. og 4. flokki Vals í ár og skoraði 43 mörk í 33 leikjum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.