Ingibjörg Magnúsdóttir: Eins og staðan er núna þá er ég leikmaður FH

Ingibjörg Magnúsdóttir, leikmaður FH

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ingibjörg Magnúsdóttir, leikmaður FH

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Auðvitað svekkjandi að vinna ekki leikinn en við förum sáttar frá borði,“ sagði Ingibjörg Magnúsdóttir, leikmaður FH, eftir 0-1 tap gegn Apollon Ladies frá Kýpur. Tapið kemur þó ekki að sök þar sem FH vann fyrri leikinn 0-2 og fer því áfram úr einvíginu.
Leikurinn var ekki mikið fyrir augað og voru gæðin af skornum skammti en hvernig upplifði Ingibjörg leikinn, var þetta erfiður leikur að spila?
„Já, þær mættu ógeðslega grimmar og það tók okkur smá tíma að finna tempóið í leiknum en svo þegar við fundum það þá fannst mér við stjórna honum nokkuð vel þangað til síðustu 15, 20, þá fór þetta smá eftir það.“
Einvígið er það fyrsta í sögu kvennaliðs FH og aðspurð hvernig það er sem uppalinn FH-ingur að fá tækifæri til að taka þátt í því segir hún:
„Bara, ógeðslega mikill heiður. Ég get ekki lýst þessu.“
Ingibjörg hefur heldur betur sprungið út á þessu tímabili og bætist þetta einvígi ofan á annaríkt sumar. Hún hefur spilað frábærlega fyrir FH og farið á lokamót með U-19 landsliðinu, hvernig metur hún þetta sumar hjá sér?
„Þetta er bara geggjað tímabil hjá liðinu og við erum ekkert búnar, það er nóg eftir og við ætlum okkur alla leið.“
Að lokum var Ingibjörg spurð hvort að hugurinn leitaði út í atvinnumennsku og því svaraði hún:
„Eins og staðan er núna þá er ég leikmaður FH og ég ætla að halda áfram að vera hér í bili.“
Viðtalið við Ingibjörgu má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
