02.09.26 - 01:05
Brynjar Ingi Erluson
Fulham fékk tvo undir lok gluggans (Staðfest)

Mynd: Fulham

Mynd: Fulham
Fulham tókst að fá tvo leikmenn til viðbótar fyrir lok félagaskiptagluggans þegar David Affengruber og Hugo Larsson sömdu við félagið.
Lundúnafélagið hafði í nógu að snúast á lokadegi félagaskiptagluggans. Fyrst kom Manuel Angel frá Real Madrid og síðan bætti Fulham sænska miðjumanninum Hugo Larsson við hópinn frá Eintracht Frankfurt.
Larsson er 22 ára og talinn einn mest spennandi leikmaður Svíþjóðar en hann var óvænt ekki valinn í landsliðshópinn fyrir heimsmeistaramótið í sumar.
Fulham fékk hann á láni frá Frankfurt með 21,4 milljóna punda kaupskyldu.
Þá kom austurríski varnarmaðurinn David Affengruber frá Elche á Spáni. Affengruber er 25 ára og hefur einnig leikið með Liefering, Salzburg og Sturm Graz í heimalandinu.
Hann varð þar með þriðji og síðasti leikmaðurinn sem Fulham fékk til félagsins á lokadegi gluggans.

?From the shores of the Baltic to the banks of the Thames. pic.twitter.com/7HnH3i0fZd
— Fulham Football Club (@FulhamFC) September 1, 2026
Affengruber's in! ???? pic.twitter.com/eUSYcx5Wdo