Fotbolti.net
02.09.26 - 00:54
Brynjar Ingi Erluson

Juan Riquelme til Sunderland (Staðfest) - Var á lista hjá Guardian

Juan Riquelme til Sunderland (Staðfest) - Var á lista hjá Guardian
Canon

Mynd: Sunderland

Sunderland tilkynnti óvænt kaup fyrir skömmu en það hefur keypt Juan Riquelme Angulo Caicedo frá Independiente del Valle fyrir 5 milljónir punda.
Caicedo er 18 ára framherji sem hefur skorað sjö mörk í 23 leikjum fyrir uppeldisfélag sitt á þessu ári. Hann er fastamaður í yngri landsliðum Ekvador og heldur nú til Sunderland.

Caicedo hefur skrifað undir langtímasamning og er búist við honum til Englands á næstu dögum. Á síðasta ári var hann á lista Guardian yfir bestu leikmenn heims sem fæddir eru árið 2008.

Framherjinn er 1,93 metri á hæð og hefur verið líkt við Erling Braut Haaland. Þrátt fyrir hæðina er hann ekki svo góður í loftinu og er það talinn hans helsti veikleiki.

Bróðir Caicedo hefur enda haldið því fram að hann sé ekkert sérstaklega hrifinn af því að skalla boltann.

Hann er skírður í höfuðið á argentínsku goðsögninni Juan Roman Riquelme sem gerði garðinn frægan með Boca Juniors í heimalandinu. Riquelme lék einnig með Barcelona og Villarreal auk þess að skora 17 mörk í 51 A-landsleik fyrir Argentínu.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.