02.09.26 - 13:47
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sjáðu nýja Evróputreyju FH - Fyrsti heimaleikur
Frítt á völlinn

Mynd: FH

Mynd: FH

Mynd: FH

Klukkan 16:00 í dag tekur FH á móti Apollon á Kaplakrikavelli í seinni leik liðanna í Evrópubikarnum. FH leiðir einvígið eftir leikinn á Kýpur en sá leikur fór 0-2 fyrir þeim hafnfirsku.
Það var fyrsti leikur í sögu kvennaliðs FH í Evrópukeppni. Nú er komið að fyrsta heimaleiknum og af því tilefni býður Auður, einn af samstarfsaðilum FH, öllum frítt á völlinn.
FH spilar í sérstökum Evróputreyjum í leiknum. Framan á treyjunni er ártalið 1929 en það er árið sem FH var stofnað. Félagið verður því 100 ára eftir þrjú ár.
Hér er hægt að skoða treyjuna betur

Leikurinn verður í beinni textalýsingu hér á Fótbolti.net.

Mynd: FH