Fotbolti.net
02.09.26 - 00:05
Fótbolti.net
Steypustöðin

Sterkastur í 21. umferð - Vaknar með 800 marbletti

Oliver Ekroth (Víkingur)

Oliver Ekroth er 34 ára fyrirliði Víkings.

Oliver Ekroth er 34 ára fyrirliði Víkings.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

„Hann var stórkostlegur allan leikinn," segir Valur Gunnarsson, sérfræðingur Innkastsins, um frammistöðu Oliver Ekroth fyirirliða Víkings í 1-1 jafnteflinu gegn KR á Meistaravöllum.

Ekroth er Sterkasti leikmaður 21. umferðar í boði Steypustöðvarinnar en hann var gríðarlega öflugur í vörn Íslandsmeistarana.
Innkastið - Ljúgum til um titilbaráttu
TENGT EFNI

Innkastið - Ljúgum til um titilbaráttu

Lestu um leikinn: KR 1 - 1 Víkingur R.
„Það var eins og hann hefði spólað eitthvað aftur í tímann. Í fyrri hálfleik lendir hann í því einn á einn að elta Galdur sem er mögulega fljótasti leikmaður deildarinnar. Hann var allstaðar, ég held að Eiður Gauti vakni með svona 800 marbletti eftir viðskipti þeirra," segir Runólfur Trausti í Innkastinu.

„Steig heldur betur upp eftir brotthvarf Gunnars Vatnhamars og steig hann varla feilspor," skrifaði Kári Snorrason, fréttamaður Fótbolta.net, í skýrslu sinni um leikinn.

Sterkustu leikmenn:
20. umferð - Aron Sigurðarson (KR)
19. umferð - Valdimar Þór Ingimundarson (Víkingur)
18. umferð - Eiður Gauti Sæbjörnsson (KR)
17. umferð - Jökull Andrésson (FH)
16. umferð - Arnór Ingvi Traustason (KR)
15. umferð - Eiður Orri Ragnarsson (Keflavík)
14. umferð - Aron Sigurðarson (KR)
13. umferð - Aron Elís Þrándarson (Víkingur)
12. umferð - Helgi Guðjónsson (Víkingur)
11. umferð - Elías Már Ómarsson (Víkingur)
10. umferð - Freyr Sigurðsson (Fram)
9. umferð - Bjarki Björn Gunnarsson (ÍBV)
8. umferð - Anton Logi Lúðvíksson (Breiðablik)
7. umferð - Lúkas Logi Heimisson (Valur)
6. umferð - Óskar Borgþórsson (Víkingur)
5. umferð - Stefán Árni Geirsson (KR)
4. umferð - Tryggvi Hrafn Haraldsson (Valur)
3. umferð - Elías Már Ómarsson (Víkingur)
2. umferð - Vuk Oskar Dimitrijevic (Fram)
1. umferð - Emil Atlason (Stjarnan)
Sterkastur í 21. umferð - Vaknar með 800 marbletti
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Sterkastur í 21. umferð - Vaknar með 800 marbletti
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Innkastið - Ljúgum til um titilbaráttu

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.