02.09.26 - 09:00
Brynjar Ingi Erluson
Man Utd mistókst að landa tveimur - „Ég hefði viljað fjóra varnarmenn“

Mynd: EPA

Gary Neville vildi fá miðvörð og bakvörð

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Manchester United reyndi að fá tvo leikmenn til félagsins undir lok félagaskiptagluggans en hafði ekki erindi sem erfiði.
Gary Neville, fyrrverandi leikmaður Manchester United og sparkspekingur hjá Sky Sports, kallaði eftir því að félagið styrkti varnarlínuna með að minnsta kosti tveimur leikmönnum. Hann vildi sjá bæði vinstri bakvörð og miðvörð koma inn fyrir lok gluggans.
„Ef þeir gætu fengið miðvörð og bakvörð myndi það koma í veg fyrir vandamálin sem við munum annars sjá. Ég er eiginlega hálflostinn yfir því að United hafi ekki styrkt vörnina.“
„Félagið gæti kannski nýtt hluta af fjármagni næsta tímabils. Ég veit ekki nákvæmlega hvernig það virkar en það hlýtur að vera hægt að skapa eitthvað fjárhagslegt svigrúm. Ég er viss um að þarna starfar fólk sem getur fundið lausn og tryggt að Michael Carrick sé með nægilega breiðan hóp.“
„Það gætu skapast mikil vandræði ef hann þarf að treysta á Heaven eða Yoro í miðverðinum til lengri tíma, eða færa Yoro í hægri bakvörð og Mazraoui yfir í þann vinstri.“
„Það hefði verið skynsamlegt að styrkja vörnina með einum eða tveimur leikmönnum í sumar. Kannski ekki fjórum þótt liðið þurfi í raun á því að halda. Ég hefði sjálfur viljað fá fjóra en einn eða tveir hefðu að minnsta kosti tryggt að hópurinn væri ekki jafn þunnskipaður,“ sagði Neville.
United reyndi að fá alsírska bakvörðinn Rayan Ait-Nouri frá Manchester City undir lok gluggans. City var tilbúið að lána hann til granna sinna en aðeins ef kaupskylda yrði í samningnum. United vildi ekki fallast á það og fóru viðræðurnar því ekki lengra.
Liðið fer því inn í fyrri hluta tímabilsins með Luke Shaw sem aðalkost í stöðu vinstri bakvarðar þrátt fyrir langa meiðslasögu hans. Í miðvarðarstöðunum verður treyst á Harry Maguire, Lisandro Martínez, Leny Yoro og Matthijs de Ligt. Martínez og Yoro hafa báðir glímt við meiðsli frá komu sinni til United og De Ligt hefur ekki leikið síðan í nóvember.
United má því illa við frekari skakkaföllum í varnarlínunni. Ef meiðslin halda áfram að hrannast upp gæti tímabilið orðið ansi langt hjá rauðu djöflunum.
Félagið ætlaði einnig að kaupa hinn 18 ára gamla miðjumann Louis Page frá Leicester City en félögin náðu ekki saman um kaupverð. Leicester vildi fá 15 milljónir punda en United var ekki reiðubúið að greiða þá upphæð.
Page var síðan í byrjunarliði Leicester gegn Plymouth í ensku C-deildinni í gær sem var í raun staðfesting á því að hann yrði áfram hjá félaginu. Leicester vann leikinn 2-0 og lagði Page upp fyrra mark