Fotbolti.net
02.09.26 - 08:48
Elvar Geir Magnússon
Ítalski boltinn

Khephren Thuram frá fram í janúar

Khephren Thuram á landsliðsæfingu Frakklands á laugardalsvelli.

Khephren Thuram á landsliðsæfingu Frakklands á laugardalsvelli.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Ítalskir fjölmiðlar greina frá því að Khephren Thuram, miðjumaður Juventus, þurfi að fara í aðgerð vegna hnémeiðsla og ekki er búist við því að hann snúi aftur fyrr en eftir áramót.

Thuram hefur ekkert komið við sögu hjá Juventus á þessu tímabili og lék ekki æfingaleikina fyrir mót. Hann hefur verið í einstaklingsæfingum og nú er ljóst að hann fer undir hnífinn á morgun.

Annar mikilvægur hlekkur í liði Juventus verður frá næstu mánuðina en það er Kenan Yildiz sem verður allavega fjarri góðu gamni í þrjá mánuði eftir aðgerð.
Yildiz frá næstu mánuði
TENGT EFNI

Yildiz frá næstu mánuði

Juventus fékk Pape Matar Sarr frá Tottenham á gluggadeginum og hann kemur með aukna breidd á miðsvæðið sem eru jákvæð tíðindi í fjarveru Thuram.

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Inter7+1219
2Lazio7+1019
3Roma7+1317
4Milan7+715
5Como7+514
6Frosinone7+413
7Cagliari7-113
8Juventus7+111
9Napoli7+310
10Torino7+110
11Atalanta7-19
12Lecce7-39
13Sassuolo7-28
14Monza7-27
15Bologna7-45
16Udinese7-74
17Genoa7-84
18Fiorentina7-94
19Parma7-94
20Venezia7-103
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.