Fotbolti.net
02.09.26 - 08:16
Elvar Geir Magnússon

Skipti tvisvar um skoðun á meðan tvær flugvélar biðu

Svakaleg atburðarás á gluggadegi

Fofana skipti tvisvar um skoðun.

Fofana skipti tvisvar um skoðun.

Canon

Mynd: EPA

Gluggadagurinn bíður oft upp á mikla ringulreið þegar félög reyna hvað þau geta á lokasprettinum að bæta við leikmannahópa sína.

Rosalegasta atburðarásin í gær var baráttan milli Sunderland og Crystal Palace um að fá Malcik Fofana, 21 árs belgískan kantmann Lyon. Guardian fer yfir það hvað átti sér stað.

Í gærmorgun var hann á leið til Sunderland og hafði gefið munnlegt samþykki fyrir fimm ára samningi. En þá skyndilega blandaði Crystal Palace sér í baráttuna.

Pierre Sage, stjóri Sunderland, þjálfaði Fofana hjá Lyon og eftir símtal þeirra á milli skipti Fofana um skoðun og vildi sameinast sínum fyrrum stjóra í Lundúnum.

Sunderland neitaði hins vegar að gefast upp.

Lyon tók tilboðum frá báðum félögum og á flugvellinum í Lyon biðu tvær einkaþotur til að sækja Fofana, ein frá Sunderland og ein frá Palace. Í hvor flugvélina myndi leikmaðurinn fara?

Á meðan tifaði klukkan og tíminn var að renna út. Ensku félögin samþykktu að Fofana færi í læknisskoðun á einkareknu sjúkrahúsi í Frakklandi og skoðunin var skráð á þau bæði. Félögin töldu að í ljósi stöðunnar væri þetta óvenjulega fyrirkomulag eina leiðin til að halda í vonina um að klára kaupin fyrir gluggalok.

Á meðan kom þriðja flugvélin við sögu því Kyril Louis-Dreyfus, eigandi Sunderland, flaug til Lyon til að sannfæra Fofana um að koma til félagsins. Þeir ræddu saman í einrúmi og þetta skilaði sér því að í gærkvöldi tilkynnti Fofana að hann hefði tekið ákvörðun um að fara til Sunderland.
Sunderland landaði Fofana (Staðfest) - Strá salti í sár Palace
TENGT EFNI

Sunderland landaði Fofana (Staðfest) - Strá salti í sár Palace

Fofana var svo kynntur hjá Sunderland, félagið náði að skila inn gögnum í tæka tíð en Palace situr eftir með sárt ennið.
Tvær flugvélar biðu eftir honum á flugvellinum í Lyon.

Tvær flugvélar biðu eftir honum á flugvellinum í Lyon.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ljósvangur, heimavöllur Sunderland.

Ljósvangur, heimavöllur Sunderland.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.