02.09.26 - 00:01
Brynjar Ingi Erluson
„Nýi Rodri“ til Brighton (Staðfest)

Mynd: Brighton

Mynd: Brighton
Spænski miðjumaðurinn Chema Andres er kominn til Brighton frá Stuttgart en honum hefur verið líkt við Rodri.
Andres er 21 árs varnarsinnaður miðjumaður sem hefur vakið mikla athygli fyrir frammistöðu sína með Stuttgart í þýsku deildinni. Hann kom til félagsins frá Real Madrid á síðasta ári og Brighton fær þarna afar spennandi leikmann sem gæti hækkað verulega í verði á næstu árum.
Brighton greiðir aðeins 15,5 milljónir punda fyrir spænska U21 árs landsliðsmanninn sem skrifaði undir fimm ára samning við félagið.
Andres hefur verið líkt við Rodri, einn besta varnarsinnaða miðjumann heims, en vill sjálfur lítið gera úr þeim samanburði.
„Þessi samanburður kemur frá ykkur blaðamönnunum. Hann er enn langt á undan mér en vonandi get ég einn daginn náð sama stigi. Það væri mikill heiður að fá að ræða við hann og segja honum hversu mikið ég lít upp til hans. Af því sem ég hef lesið virðist hann vera frábær manneskja.“
„Ég myndi lýsa mér sem glöðum og hógværum einstaklingi sem kemur vel saman við alla. Ég falla ekki inn í þessa dæmigerðu staðalímynd fótboltamannsins og kýs að halda mig utan sviðsljóssins,“ sagði Andres við Athletic í apríl.

Spain to Sussex. Andres is Albion. ???????????? pic.twitter.com/r547lYsmOM
— Brighton & Hove Albion (@BHAFC) September 1, 2026