Fotbolti.net
02.09.26 - 00:24
Brynjar Ingi Erluson

Palace sækir spennandi leikmann úr dönsku deildinni (Staðfest)

Palace sækir spennandi leikmann úr dönsku deildinni (Staðfest)
Canon

Mynd: Crystal Palace

Dario Osorio er kominn til Crystal Palace á láni frá danska stórliðinu Midtjylland út tímabilið og gerir skiptin síðan varanleg síðar á tímabilinu.
Crystal Palace náði samkomulagi við Midtjylland fyrr í dag um að fá Osorio á láni með kaupskyldu.

Osorio er 23 ára vængmaður sem hefur orðið bæði danskur meistari og bikarmeistari á þeim þremur árum sem hann hefur leikið með Midtjylland. Íslenski landsliðsmarkvörðurinn Elías Rafn Ólafsson lék með honum þegar félagið vann bikarinn á síðustu leiktíð.

Erlendir fjölmiðlar segja Palace greiða tvær milljónir evra fyrir lánið áður en félagið kaupir Osorio á 30 milljónir evra á næsta ári. Hann verður þá dýrasti leikmaður sem seldur hefur verið úr dönsku úrvalsdeildinni.

Osorio hefur komið að 43 mörkum í 121 leik fyrir Midtjylland og á að baki 25 A-landsleiki og þrjú mörk fyrir Síle.

Þetta eru líklega síðustu skiptin sem verða kynnt úr ensku úrvalsdeildinni í kvöld, en það má þó enn gera ráð fyrir að Brighton sendi frá sér tilkynningu um komu Femi Azeez frá Millwall í fyrramálið.



Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.