„Að falla með 24 stig hlýtur að vera met"


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Sorgmæddur er það fyrsta sem kemur upp í hugann hjá mér“ sagði Matthías Guðmundsson, þjálfari Vals, eftir að liðið féll niður um deild. Þrátt fyrir sigur Vals gegn Fram vann Þór/KA Víking og þar með var fall Vals staðfest.
„Mér fannst Valsliðið mjög gott í dag á móti góðu Framliði, við gerðum okkar og gerðum það bara mjög vel."
„Mér finnst margir fljótir að gleyma að þetta voru allt jafnir leikir sem Valur var í fyrir utan tvo leiki í allt sumar. Hvort sem við vorum einu sinni þrjú núll undir í hálfleik þá endaði sá leikur þrjú tvö. En það eru tveir leikir sem við töpuðum illa til dæmis einu sinni á móti Fram, á reyndar tíu mínútum. Svo er þessi deild búin að vera skuggalega jöfn og að við skulum falla með tuttugu og fjögur stig, hlítur að vera met."
Voru mikið af leikjum þá ekki að falla með ykkur?
„Litlu atriðin, litlu og stóru atriðin, kannski ekki að falla með okkur. Við komumst í stöður sem við nýttum ekki nógu vel og eitthvað svona álíka eða klaufalegt mark. Svona er fótboltinn, það þarf fullan fókus. Við erum með ungt lið, reynslan sem liðið er komið með þetta tímabil hefur aukist alveg gígantískt þar sem Valur er í breytingum. Valur er að spila mjög ungu liði, þá er þungur bakpoki að vera í Val. Mér finnst stelpurnar hafa gert það alveg hrikalega vel, þær hafa aldrei brotnað og hafa staðið uppréttar allan tímann. Stemmingin í hópnum hefur verið frábær, mér finnst það hafa hjálpað okkur líka. Þær eru sárar í dag og auðvitað skiljum við það."
Vantaði meiri reynslu hjá Val í sumar?
„Við erum aðeins yngri en við ætluðum okkur, þar sem Begga og Rakel, sem eru tveir bestir leikmenn liðsins urðu óléttar fyrir tímabilið. Þær eru með mikla reynslu, það sem reynslan sem ungu stelpurnar fá eftir þetta mót er pottþétt mjög mikil og eftir að hjálpa þeim mjög mikið."
„En það er leiðinlegt að falla, ég stend hérna fyrir framan þig núna og ég hef fallið þrisvar sinnum með liðinu sem mér þykir vænst um og það er Valur að sjálfsögðu. Ég hef komist upp þrisvar sinnum og ég hef líka unnið alla titla sem er í boði á Íslandi. Knattspyrnumenn geta átt góðan feril þá að þeir falli."
Viltu halda áfram að þjálfa Val?
„Ég er áfram með samning við Val og ég hef mikinn áhuga að vera áfram hjá Val, já."
Fullt viðtal í spilaranum fyrir ofan
