02.11.04 - 20:52
Hafliði Breiðfjörð
Haraldur Freyr Guðmundsson til Aalesund (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hjalti Þór Hreinsson

Mynd: Fótbolti.net - Hjalti Þór Hreinsson
Haraldur Freyr Guðmundsson gerði í kvöld samkomulag við Aalesund FK í Noregi um að ganga til liðs við félagið í janúar 2005. Haraldur gerði þriggja ára samning við norska félagið. Aalesund mun spila í norsku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð en félagið endaði í öðru sæti 1. deildar á tímabilinu sem var að ljúka.
Haraldur æfði með félaginu í síðasta mánuði ásamt Þórarni Kristjánssyni félaga sínum úr Keflavík og fékk í kjölfarið samningsboð frá félaginu sem hann hefur nú samþykkt.
Haraldur verður 23 ára gamall í desember en hann vakti mikla athygli fyrir leik sinn í vörninni með Keflavík í sumar. Samningur hans við Keflavík rennur út um áramótin og í kjölfarið gengur hann til liðs við Aalesund.
Sjá einnig:
Hin Hliðin á Haraldi síðan í desember 2003