Fotbolti.net
02.11.23 - 11:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

„Kom mér eiginlega sjálfum á óvart að ég væri til í það"

Auglýsing
Mig langaði að fara aftur í efstu deild, spila þar og fannst þetta mest spennandi kosturinn af því sem var í boði.

Mig langaði að fara aftur í efstu deild, spila þar og fannst þetta mest spennandi kosturinn af því sem var í boði.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hans Viktor Guðmundsson var í síðasta mánuði tilkynntur sem nýr leikmaður KA. Hans, sem var fyrirliði Fjölnis, flytur norður eftir áramót og skrifar undir samning út tímabilið 2025.
Hans Viktor í KA (Staðfest)
TENGT EFNI

Hans Viktor í KA (Staðfest)

„Mér fannst KA mjög spennandi kostur, fara í eitthvað allt annað, prófa eitthvað nýtt. Ég held að það sé bara mjög gott fyrir mig. Mig langaði að fara aftur í efstu deild, spila þar og fannst þetta mest spennandi kosturinn af því sem var í boði. Það voru nokkur lið sem heyrðu í mér, það var allavega einhver áhugi," sagði Hans við Fótbolta.net.

Hans var orðaður við FH og KR eftir að hann rifti samningi sínum við Fjölni. Hvorki FH né KR höfðu samband við Hans. Hvernig var að lesa um áhuga þeirra liða?

„Mér fannst það skemmtilegt en líka skrítið. Svo voru aðrir í kringum mig að furða sig á þessu."

Hans segir að það hafi ekki þurft mikið til að sannfæra kærustuna að flytja með sér norður. Hann þurfti heldur ekki langan tíma til að sannfærast sjálfur.

„Þetta kom mér eiginlega sjálfum á óvart að ég væri til í það. Þetta verður bara mjög skemmtilegt, spennandi að prófa þetta. Kærastan kemur með mér og stefnan er að fara í byrjun janúar. Ég er mjög spenntur að komast inn í hlutina og sjá hvernig þetta er."

„Nei. Hún er utan af landi, það var mjög auðvelt, hún var bara mjög spennt fyrir þessu."


Fyrrum landsmaðurinn Hallgrímur Jónasson er þjálfari KA. Hallgrímur lék sem varnarmaður á sínum ferli.

„Mér líst vel á að vinna með honum. Mér fannst það líka punktur í þessu, held að hann geti kennt mér helling og fannst það mjög heillandi."

„Þetta tók smá tíma, sérstaklega í byrjun, maður var ekkert búinn að hugsa um að fara út á land. Svo varð maður bara spenntari og spenntari þegar maður fór að hugsa meira út í þetta og tala meira við KA-menn."

„Það er ekkert lykilatriði að vera áfram í gulu, en það er samt gaman."


Hans hefur bæði spilað sem miðjumaður og miðvörður á sínum ferli. „Ég er miðvörður; hef spilað miðvörðinn í mjög langan tíma núna. Ég tók eitt tímabil á miðjunni, en í dag er ég miðvörður."

Hans er spenntur að spila við hlið Ívars Arnar í hjarta varnarinnar hjá KA. „Hann stóð sig feikilega vel í sumar og ég held að við munum mynda mjög gott miðvarðapar."

Veistu hvað KA ætlar að gera á næsta tímabili? Var þér seld einhver hugmynd?

„Það er ekki búið að segja það (Evrópusæti) endilega. En ég hef talað við þá, finn að það er mikill metnaður og þeir vilja ná árangri. Það er mjög jákvætt og spennandi," sagði Hans.

Viðtalið í heild má sjá í spilaranum efst.
Mér fannst það líka punktur í þessu, held að hann geti kennt mér helling og fannst það mjög heillandi

Mér fannst það líka punktur í þessu, held að hann geti kennt mér helling og fannst það mjög heillandi

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Held að við munum mynda mjög gott miðvarðapar

Held að við munum mynda mjög gott miðvarðapar

Canon

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.