Fotbolti.net
26.06.26 - 22:20
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Keane: Skoskir stuðningsmenn eru sennilega að fara út á flugvöll

Keane: Skoskir stuðningsmenn eru sennilega að fara út á flugvöll
Canon

Mynd: EPA

Skotar eru í erfiðri stöðu eftir að Senegal vann stórsigur á Írak í kvöld. Skotland fer ekki í 32-liða úrslitin eins og staðan er í dag.

Skotland þarf að treysta á að Egyptaland vinni Íran og Spánn vinni Úrúgvæ annars er liðið úr leik.
Með hressustu stuðningsmennina en fúlasta þjálfarann
TENGT EFNI

Með hressustu stuðningsmennina en fúlasta þjálfarann

Roy Keane, sérfræðingur á Sky Sports, segir að stuðningsmenn skoska landsliðsins séu líklega búnir að gefa upp vonina.

„Ef þú ert stuðningsmaður Skotlands ertu sennilega að fara út á flugvöll. Þetta getur ekki verið auðvelt fyrir leikmennina. Ábyrgðin er á þeim. Ef þeir hefðu bara náð í eitt aukastig, spilað aðeins betur. Þetta hafa verið erfiðar vikur fyrir þá," sagði Keane.

Stuðningsmennirnir hafa fengið mikla athygli fyrir framgöngu sína í Bandaríkjunum en Steve Clarke, landsliðsþjálfari Skota, hefur verið einstaklega neikvæður í viðtölum. Hann talaði um eftir síðasta leik gegn Brasilíu að þeir væru líklega á leið heim.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.