Wrexham goðsögn yfirgefur félagið

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Paul Mullin hefur yfirgefið Wrexham eftir að hann komst að samkomulagi við félagið um að rifta samningi sínum.
Mullin er 31 árs gamall sóknarmaður en hann átti stóran þátt í svakalegum uppgangi félagsins úr utandeildinni og upp í Championship deildina.

Hann skoraði 110 mörk í 172 leikjum eftir komuna frá Cambridge United árið 2021.
Hann varð að enn stærra nafni eftir hlutverk hans í heimildaþáttunum Welcome to Wrexham.
Hann var lánaður til Wigan á síðustu leiktíð og Hollywood-leikarinn og annar eigenda Wrexham Ryan Reynolds, sagðist ekki geta séð Mullins fyrir sér á láni og í treyju annars liðs.