Muslera tekinn af velli eftir enn ein mistökin

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Fernando Muslera, markvörður Úrúgvæ, er að eiga afskaplega vont mót á HM. Hann gerði sig sekan um slæm mistök í síðasta leik þegar hann fór út í skógarhlaup og Grænhöfðaeyjar náðu í jafntefli.
Hann gerði önnur mistök nú í nótt þar sem Úrúgvæ er marki undir gegn Spáni.

TENGT EFNI
Sjáðu markið: Hvað var markvörðurinn að gera?
Alex Baena skoraði markið með skoti tiltölulega beint á Muslera en honum tókst ekki að halda boltanum frá markinu. Sjáðu markið hér
Marcelo Bielsa, þjálfari Úrúgvæ, ákvað að taka Muslera af velli í hálfleik og setti Sergio Rochet inn á. Muslera er fertugur en hann tók landsliðshanskana af hillunni til að spila á heimsmeistaramótinu.
Grænhöfðaeyjar og Sádi-Arabía eru að gera markalaust jafntefli í hinum leik riðilsins. Eins og staðan er núna eru Spánn og Grænhöfðaeyjar að fara áfram og Úrúgvæ og Sádi-Arabía á leið heim.