Óli Stefán svekktur: Við vildum nú fá ansi mikið

Óli Stefán var svekktur eftir jafntefli við Hauka

Mynd: Selfoss

Óli Stefán var svekktur eftir jafntefli við Hauka

Mynd: Selfoss

„Bara svekktur að missa þetta niður hérna í lokin og enn eitt fasta leikatriði sem við fáum mark á okkur úr. Ég horfi svolítið í þetta sem leik tveggja hálfleika. Við vorum ekki nógu opnir í fyrri hálfleik, vorum hérna undir, undir í bara svona stöðubaráttu. Það finnst mér svona ákveðin grunnvinna sem að við þurfum alltaf að leggja inn ef við ætlum að hérna vinna okkur inn eitthvað eða fá okkur út úr leikjum og ég var ekki ánægður með hvernig við mættum með grunnvinnuna í seinni hálfleik."
Óli var sáttara með seinni hálfleikinn. „Aftur á móti vorum við mjög öflugir í seinni hálfleik og gríðarlega svekktir að koma okkur til baka og gríðarlega svekktir að landa þessum sigri hérna."
Selfyssingar töldu sig eiga inni vítaspyrnu í fyrri hálfleik en dómarinn var á öðru máli og lét leikinn halda áfram.
„Við vildum nú fá ansi mikið og mér heyrðust Haukarnir vilja fá ansi mikið líka. Auðvitað getum við alveg kallað eftir því, ég náttúrulega ætla bara ekki að fara í það. Þetta fór bara eitthvað hérna, þeir fengu eitthvað og við eitthvað og þetta er bara eins og það er."



