Fotbolti.net
26.06.26 - 22:47
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Sjáðu „klúður ársins" í Grindavík

Rúnar Ingi Eysteinsson

Rúnar Ingi Eysteinsson

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Grindavík og Ægir gerðu markalaust jafntefli í Lengjudeildinni í kvöld en Rúnar Ingi Eysteinsson klikkaði á algjöru dauðafæri fyrir Grindavík í leiknum.

Lestu um leikinn: Grindavík 0 - 0 Ægir
Gunnleifur Vignir Gunnleifsson slapp í gegn og renndi boltanum á Rúnar sem stóð fyrir framan opið markið en rúllaði boltanum framhjá.

„Gunnleifur tekur rétta ákvörðun og rennir boltanum á Rúnar sem er með autt markið fyrir framan sig og nær á einhvern óskiljanlegan hátt að setja boltann ekki inn í netið! Hann setur boltann framhjá markinu og ég ætla að slengja því fram að þetta sé klúður ársins. Ótrúleg atburðarás og enn markalaust," skrifaði Ívar Björgvinsson í textalýsinguna á Fótbolti.net.

„Já það var gríðarlega svekkjandi, Gulli fær síðan líka færi einn á móti markmanni og skýtur yfir. Við þurfum bara að halda áfram og klára þessar álitlega stöður," sagði Ray Anthony Jónsson, þjálfari Grindavíkur, í viðtali við Fótbolta.net eftir leikinn.

Um botnslag var að ræða en Ægir er í 11. sæti með átta stig, stigi á eftir Grindavík sem situr í tíundasæti.

Ray Anthony: Ánægður með það hvað við vorum svekktir

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.