Vonast eftir megaviku í næsta leik: Borða pítsu og skora mörk


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Mjög vel, þetta var hörku leikur á móti vel skipulögðu liði Njarðvíkur" sagði Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar eftir 2-0 sigur sigur gegn Njarðvík á heimavelli.
„Ég er ekki ánægður með fyrri hálfleikinn, mér fannst leikurinn ekki nægilega góður hjá okkur þá, en mér fannst við taka yfir leikinn í seinni hálfleik og mér fannst við verðskulda sigurinn á endanum. Mjög ánægður með trúna hjá strákunum allan tímann og þó að mörkin komu seint þá fannst mér við verðskulda þennan sigur."
Var leikurinn í dag gott svar eftir tap gegn Vestra?
„Já, ekki spurning. Allt annað að sjá liðið í dag, sérstaklega í seinni hálfleik. Seinni hálfleikurinn vera betri í dag, við eigum samt enn þá meira inni að mínu mati. Við verðum að gera enn þá betur og spila heilsteyptari leiki, ég vil sjá þessa frammistöðu í seinni hálfleiknum líka í fyrri hálfleiknum. Þannig að það er margt sem við getum bætt enn þá og þurfum að gera það en þetta var frábærlega gert hjá strákunum."
Hvað þarf Afturelding að gera betur?
„Við dettum of langt niður á köflum í leikjum og við höfum ekki náð að sýna okkar bestu hliðar á löngum köflum í dag og sama á móti Vestra. Þar byrjuðum við ekki að spila þangað til að við vorum komnir eitt núll undir á sjötugustu mínútu. Í dag byrjuðum við ekki að spila fyrr en í seinni hálfleik á alvöru leveli að mínu mati. Þannig að við þurfum að mæta grimmari inn í leikina."
Birkir Már skoraði og lagði upp eitt mark í dag.
„Birkir náttúrulega leggur upp eitt og skorar annað, segir sitt um orkuna í honum. Það er megavika hjá Dominos í dag í Mosfellsbæ bara. Þannig að vonandi fáum við það aftur í næsta leik. Hann skorar alltaf þegar það er megavika þannig að við erum búnir að plana þetta með Dominos. Þannig að það hlýtur að vera Megavika aftur í Mosó á M
mánudaginn."
„Hvet Mosfellinga að nýta sér tilboðið, það er hægt að panta á netinu, allaveganna á völdum leikdögum með kóðanum Birkir, kóðanum sem hann er með. Við þurfum að nýta okkur það og borða pítsu og skora mörk."


