Fotbolti.net
26.06.26 - 09:30
Brynjar Ingi Erluson

Rashford hækkar í launum

Rashford hækkar í launum
Canon

Mynd: EPA

Marcus Rashford, leikmaður Manchester United, mun hækka í launum um mánaðamótin, en þetta kemur fram í Sun.
Marcus Rashford snýr aftur til Manchester United eftir heimsmeistaramótið en hann var á láni hjá Barcelona á síðustu leiktíð.

Barcelona er með möguleika á að gera félagaskiptin varanleg en hefur hingað til ekki sýnt vilja til að greiða uppsett verð fyrir enska landsliðsmanninn.

Sun segir að áhugi sé á Rashford en laun hans gætu flækt stöðuna. Hann mun hækka í launum hjá United um mánaðamótin þar sem félagið er komið aftur í Meistaradeildina.

Rashford er nú á 300 þúsund pundum á viku en launin hækka í 325 þúsund pund.

Launapakkinn mun því skipta miklu máli varðandi framtíð hans enda hafa ekki öll félög efni á að greiða þennan launapakka.

Tottenham er sagt reiðubúið að greiða Rashford þessi laun, komi til þess að félagið ákveði að leggja fram tilboð í hann á næstu vikum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.