Fotbolti.net
27.06.26 - 02:07
Jóhann Þór Hólmgrímsson

HM: Slæm markmannsmistök er Úrúgvæ féll úr leik - Grænhöfðaeyjar skrifa söguna

HM: Slæm markmannsmistök er Úrúgvæ féll úr leik - Grænhöfðaeyjar skrifa söguna
Canon

Mynd: EPA

Það var mikil spenna í H-riðli fyrir lokaumferðina í nótt. Spánn vann riðilinn og Grænhöfðaeyjar eru komin í 32-liða úrslitin á sínu fyrsta stórmóti.

Spánn og Úrúgvæ áttust við á Akron vellinum í Mexíkó. Spánverjar byrjuðu betur en Úrúgvæ sótti í sig veðrið þegar leið á hálfleikinn.
Darwin Nunez fékk góða sendingu inn á teiginn og ætlaði að hæla boltann í átt að marki en hitti hann ekki.

Spánn náði forystunni undir lok fyrri hálfleiks þegar Alex Baena átti skot tiltölulega beint á Fernando Muslera sem náði ekki að halda boltanum frá markinu. Marcelo Bielsa, þjálfari Úrúgvæ, ákvað að taka hann af velli í hálfleik.

Bielsa þurfti að gera eina breytingu fyrir lok fyrri hálfleiks þegar Manuel Ugarte, leikmaður Man Utd, virtist meiðast illa á hné.

Seinni hálfleikur var nokkuð rólegur en Ferran Torres var hársbreidd frá því að innsigla sigur Spánar undir lokin en skaut í slá.

Úrúgvæ spilaði síðustu sekúndurnar manni færri þegar Augustin Canobbio var rekinn af velli með rautt spjald. Mörkin urðu ekki fleiri og Spánn er komið áfram en Úrúgvæ er fallið úr leik.

Grænhöfðaeyjar og Sádi-Arabía mættust í hinum leik riðilsins og það var tækifæri fyrir bæði lið að komast upp fyrir Úrúgvæ í 2. sæti riðilsins.

Fyrri hálfleikurinn var rólegur en bæði lið fengu fín færi til að skora. Það var hins vegar markalaust í hálfleik.

Laros Duarte var nálægt því að koma Grænhöfðaeyjum yfir þegar um stundafjórðungur var til loka venjulegs leiktíma en Mohammed Al-Owais í marki Sádi-Arabíu varði vel frá honum.

Grænhöfðaeyjar héldu áfram að pressa á mark Sádi-Arabíu en Sádar voru nálægt því að stela þessu í lokin en skot Abdullah Al-Hamdan fór beint á Vozinha í marki Grænhöfðaeyja.

Spánn vinnur riðilinn með sjö stig og Grænhöfðaeyjar enda í 2. sæti með þrjú stig og eru komin áfram. Úrúgvæ og Sádi-Arabía eru hins vegar úr leik.

Grænhöfðaeyjar 0 - 0 Sádi-Arabía

Úrúgvæ 0 - 1 Spánn
0-1 Alex Baena ('42 )
Rautt spjald: Agustin Canobbio, Uruguay ('90)
HM: Slæm markmannsmistök er Úrúgvæ féll úr leik - Grænhöfðaeyjar skrifa söguna
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.