Fotbolti.net
26.06.26 - 23:04
Hafþór Örn Laursen

Brynjar Björn: Það er mikið meira „value'' í honum heldur en þetta eina atvik

Auglýsing
Brynjar Björn, þjálfari Leiknis

Brynjar Björn, þjálfari Leiknis

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Lengjudeildin
Leiknismenn fengu nágranna sína ÍR í heimsókn í kvöld á Leiknisvelli í 11. umferð Lengjudeildarinnar. Leikar enduðu 2-1 Leiknismönnum í hag.
Lestu um leikinn: Leiknir R. 2 - 1 ÍR
„Mér líður vel með stigin þrjú efttir frekar dapran fyrri hálfleik af okkar hálfu'', sagði Brynjar Björn, þjálfari Leiknis í viðtali eftir leikinn.

„Við keyrðum aðeins upp tempóið í leiknum og jöfnum snemma í seinni hálfleik og eftir það skorar Xeni (Shkelzen Vezeli) frábært mark.''

Á 17. mínútu þurfti Kári Steinn Hlífarsson að fara útaf. Hvers vegna var það?

„Hann er keyrður niður í hraðaupphlaupi þegar hann var kominn í gegn og ætlaði að skjóta á markið og hann meiðist í því atviki.''

Í marki ÍR gerði Ólafur Íshólm, markmaður Leiknis, mistök sem voru dýr. Hins vegar upp undir lok seinni hálfleiks varði hann frábært skot Sigurði Karli.

„Þetta mark lítur ekkert endilega vel út fyrir hann, en það er miklu meiri „value'' í honum heldur en þetta eina atvik. Hann varði vel í dag og mögulega bjargaði leiknum fyrir okkur.''

Eftir þennan sigur sitja Leiknismenn í 6. sæti með 18 stig. Næsti leikur þeirra er annar heimaleikur, þá gegn Völsungi þann 4. júlí.

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum fyrir ofan
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.