02.12.03 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Jón Guðbrandsson í Víking R. (Staðfest)

Mynd: Merki

Mynd: Merki
Víkingar sendu nú undir kvöld frá sér fréttatilkynningu þess efnis að Jón Guðbrandsson hefði skrifað undir þriggja ára samning við félagið. Í fréttatilkynningunni segir ennfremur að Jón sé efnilegur varnar- og miðjumaður frá Selfossi og hefur hann spilað með meistaraflokksliði heimamanna í 2.deild síðustu tvö leiktímabil. Þrátt fyrir ungan aldur hefur Jón spilað 34 deildarleiki og skorað í þeim 9 mörk.
Jón er 18 ára gamall og að baki 9 leiki með U-17 landsliðinu og 2 með U-19 landsliðinu.
Víkingar hafa fengið til sín framtíðarleikmann sem vænta má mikils af í framtíðinni.
Þetta er mikill fengur fyrir Víkinga því að fleiri lið í Landsbankadeildinni vildu fá Jón í sínar raðir samkvæmt okkar heimildum.