03.01.05 - 13:05
Elvar Geir Magnússon
Moore til Mönchengladbach (Staðfest)

Ástralski varnarmaðurinn Craig Moore er genginn til liðs við þýska félagið Borussia Mönchengladbach, hann skrifaði undir 18 mánaða samning við félagið. Dick Advocaat þjálfari Mönchengladbach þekkir vel til Moore síðan hann var stjóri á Ibrox en hann keypti Moore á sínum tíma til Rangers.
Moore var ekki í náðinni hjá félagi sínu, Glasgow Rangers, og búið var að gefa það út að hann mætti fara frá liðinu í janúar. Moore er 29 ára en hann hefur ekki leikið með skoska liðinu síðan 22.september. Hann er annar varnarmaðurinn sem fer frá Rangers á tveimur dögum en í gær gekk Jean-Alain Boumsong til liðs við Newcastle.
John Viola umboðsmaður Moore segir að fjölmörg lið í ensku úrvalsdeildinni hafi verið á eftir Moore en ástæðan fyrir því að hann valdi Mönchengladbach er sú að þar er Advocaat við stjórnvölinn.
Aðalástæða þess að Moore féll í ónáð hjá Rangers var sú að hann tók landslið Ástralíu framyfir og ákvað að leika með því á Ólympíuleikunum í ágúst, í kjölfarið missti hann fyrirliðabandið hjá Rangers.
Þessi félagaskipti hans koma ekki mjög á óvart en við greindum frá því á síðasta ári að Moore væri líklega á leið til Mönchengladbach.