Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 03. janúar 2020 22:11
Ívan Guðjón Baldursson
Kjarnafæðismót kvenna: Hamrarnir rúlluðu yfir Tindastól
Mynd: Heimasíða Þórs - Palli Jóh
Hamrarnir 5 - 0 Tindastóll
1-0 Rakel Sjöfn Stefánsdóttir ('15)
2-0 Jakobína Hjörvarsdóttir ('55)
3-0 Iðunn Rán Gunnarsdóttir ('61)
4-0 Jakobína Hjörvarsdóttir ('80)
5-0 Una Móeiður Hlynsdóttir ('81)

Hamrarnir rúlluðu yfir Tindastól í fyrstu umferð Kjarnafæðismóts kvenna sem haldið er á Akureyri. Kjarnafæðismótið er haldið á hverjum vetri en þetta er í fyrsta sinn sem kvennamót er haldið samhliða karlamótinu.

Rakel Sjöfn Stefánsdóttir gerði eina markið í fyrri hálfleik en flóðgáttirnar opnuðust eftir leikhlé.

Jakobína Hjörvarsdóttir skoraði tvö og gerðu Iðunn Rán Gunnarsdóttir og Una Móeiður Hlynsdóttir sitt markið hvor.
Athugasemdir
banner
banner