12.09.26 - 12:44
Brynjar Ingi Erluson
Slær á sögusagnir um að Guardiola verði þjálfari Salah

Pep mun ekki þjálfa Salah

Mynd: EPA

Pep mun ekki þjálfa Salah

Mynd: EPA
Umboðsmaður Pep Guardiola hefur vísað því til föðurhúsanna að Spánverjinn sé á leið til Trabzonspor, en tyrkneskir fjölmiðlar greindu frá því á dögunum að félagið væri í viðræðum við hann um að fá Guardiola til starfa.
Guardiola hætti hjá Manchester City í sumar eftir tíu stórkostleg ár og var í kjölfarið orðaður við ítalska landsliðið en hafnaði því tækifæri.
Á dögunum fór svo allt á fullt á samfélagsmiðlum þegar tyrkneskir miðlar sögðu Trabzonspor reyna að fá hann. Félagið var sagt tilbúið að greiða honum þrettán milljónir evra í árslaun og Guardiola íhuga tilboðið.
Trabzonspor hefur leitað að nýjum þjálfara síðan Fatih Tekke sagði starfi sínu lausu eftir að liðinu mistókst að komast í Evrópudeildina, en Guardiola verður ekki sá sem tekur við. Umboðsmaður hans hefur nú staðfest að hann ætli ekki að þjálfa á þessu tímabili.
„Pep mun ekki þjálfa neitt félag eða landslið á þessu tímabili,“ sagði hann í stuttu samtali við AS.
Trabzonspor virðist hafa úr nægu að moða en Mohamed Salah samdi við félagið í sumar, líkt og Fabinho, Ruslan Malinovskyi og fengið fleiri öfluga leikmenn.
Liðið tekur þátt í deildarkeppni Sambandsdeildarinnar í ár og er í fjórða sæti tyrknesku deildarinnar með sjö stig eftir fjóra leiki.