12.09.26 - 12:31
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu huggulega stoðsendingu Helga Fróða

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Helgi Fróði Ingason átti glæsilega stoðsendingu í 3-1 sigri Helmond Sport á unglinga- og varaliði PSV í B-deildinni í Hollandi í gær.
Helgi lagði upp fyrsta mark Helmond eftir tíu mínútna leik í gær og gerði það með glæsibrag.
Hann fékk boltann við vítateigslínuna og sýndi skemmtileg tilþrif áður en hann lagði hann fyrir Livio Cicero, sem gat varla annað en skorað.
Þetta var önnur stoðsending Helga á tímabilinu en hann er fastamaður hjá Helmond, sem situr í 11. sæti hollensku B-deildarinnar með átta stig.
Hann er á sínu þriðja tímabili hjá félaginu eftir að hafa komið frá Stjörnunni árið 2024.