Fotbolti.net
12.09.26 - 12:12
Brynjar Ingi Erluson

Richarlison skellir skuldinni á Tottenham

Richarlison

Richarlison

Canon

Mynd: EPA

Richarlison, framherji Tottenham, fer ekki til Vasco da Gama í heimalandinu vegna þess að enska félagið getur ekki sent fleiri leikmenn út á láni.
Richarlison hefur verið settur í frystikistuna hjá Tottenham eftir að hann reyndi að komast frá félaginu undir lok sumargluggans.

Hann var sagður nálægt því að ganga til liðs við Everton en náði ekki samkomulagi um kaup og kjör og varð því ekkert af skiptunum. Tottenham skráði hann ekki í úrvalsdeildarhópinn og hefur hann síðan verið látinn æfa með U21 árs liðinu.

Á dögunum hóf Richarlison viðræður við Vasco da Gama, en það hefur lengi verið draumur hans og fjölskyldunnar að hann spili fyrir félagið.

Enskir miðlar sögðu Tottenham og Vasco hafa náð samkomulagi en að aftur hefði strandað á launakröfum leikmannsins. Richarlison hafnar því og segir Tottenham þegar hafa fullnýtt heimild sína til að lána leikmenn til erlendra félaga og því hafi ekkert orðið af skiptunum.

„Ég fékk önnur tilboð en tók skýrt fram að ég vildi fara til Vasco til áramóta. Því miður var Tottenham búið að fullnýta heimild sína til að lána leikmenn til erlendra félaga sem varð til þess að þetta gekk ekki upp.“

„Ég held að ég verði bráðlega á Sao Januario (leikvangi Vasco) og í Barreira því þið vitið hversu vænt mér þykir um ykkur.“

„Einn daginn læt ég þennan draum rætast, en þetta er draumur minn, afa míns og fjölskyldunnar. Ég tala frá hjartanu því mig langaði ekkert meira en að spila með Vasco,“
sagði Richarlison á Instagram.


Richarlison skellir skuldinni á Tottenham
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.