12.09.26 - 11:54
Brynjar Ingi Erluson
Belgískur landsliðsmaður gagnrýnir FIFA - „Fótboltinn var ekki í forgangi á HM“

Thomas Meunier

Mynd: EPA

Balogun sá rautt gegn Bosníu en spjaldið var dregið til baka

Mynd: EPA

Trump sannfærði Infantino um að taka rauða spjaldið á Balogun til baka

Mynd: EPA

Thomas Meunier

Mynd: EPA
Belgíski landsliðsmaðurinn Thomas Meunier telur að það megi læra margt af heimsmeistaramótinu sem fór fram í Norður-Ameríku í sumar og að fótboltinn verði alltaf að vera í forgangi.

TENGT EFNI
Balogun tjáir sig um ákvörðunina umdeildu: Erfitt að einbeita sér
Meunier ræddi um heima og geima við Athletic og var meðal annars spurður út í umdeilt atvik fyrir landsleik Belgíu gegn Bandaríkjunum á HM.
Folarin Balogun hafði fengið rauða spjaldið í 32-liða úrslitunum gegn Bosníu en það var síðar dregið til baka með afar sérstökum hætti. Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, ræddi málið við Gianni Infantino, forseta FIFA, og gátu Bandaríkjamenn í kjölfarið stillt upp sínu sterkasta liði.
Meunier segir málið hafa sett svartan blett á mótið og komið Balogun í stöðu sem hann bað aldrei um að vera í.
„Mér finnst pólitík og fótbolti ekki eiga samleið en vandamálið er að fótboltinn endurspeglar hvernig fólk hugsar og það heyrist úr stúkunni, þar sem er rasismi og ýmislegt annað. Er þá yfirhöfuð hægt að aðskilja fótbolta og pólitík?“
„Fótboltasamböndin eru pólitísk og svo er það fjárhagslega hliðin, en þetta tengist allt og er svolítið eins og hjá stjórnvöldum. Svo lengi sem stjórnmálamenn taka bestu ákvarðanirnar fyrir fólkið er það ekkert vandamál en ef ákvarðanirnar ganga gegn íþróttinni getur það orðið hættulegt, þó ég ætli kannski ekki að nota orðið spilling.“
„Það var það sem gerðist með Balogun, sökin á tapinu var sett á hann þótt hann hefði ekki beðið um neitt. Það var allt of mikið fjaðrafok og of mikið lagt á hann, en eftir þetta atvik og allar deilurnar vildu allir að við ynnum Bandaríkin einmitt af þessari ástæðu. Allir vildu fá þá úr keppninni.“
„Þetta atvik endurspeglaði allt heimsmeistaramótið, þar sem kapítalismi, skemmtun og peningar réðu ferðinni. Mótið sýndi myrku hliðina á hefðbundnum fótbolta.“
„Það jákvæða er þó að við sáum að Bandaríkin eru mikil íþróttaþjóð með frábæra innviði til að halda HM á hverju ári, svo lengi sem það snýst bara um fótbolta og ekkert annað. Vandamálið var að fótboltinn var ekki í forgangi á þessu móti,“ sagði Meunier.
Belgía vann Bandaríkin 4-1 og komst örugglega í átta liða úrslit en féll þar úr leik gegn Spánverjum, sem fóru alla leið og urðu heimsmeistarar.