Fotbolti.net
03.03.04 - 00:00
Hafliði Breiðfjörð

Smith til Manchester United! (Staðfest)

Smith til Manchester United! (Staðfest)
Canon
Manchester United réðu í dag Walter Smith sem aðstoðarstjóra félagsins út tímabilið. Smith sem hætti með Everton árið 2002 tekur við stöðu Carlos Queiros sem hætti síðasta sumar til að taka við Real Madrid. ,,Tækifærið á að koma til Manchester United var eitthvað sem ég gat ekki hafnað." sagði Smith í dag. ,,Það eru fáar stærri áskoranir í fótboltanum en að aðstoða farsælt félag við að halda áfram góðu gengi. Ég dái Sir Alex mikið fyrir hvað hann hefur gert hjá United og hlakka til að verða hluti af því."
Ferguson var ánægður með komu Smith og sagði: ,,Það er fátt fólk í leiknum með hans reynslu, þekkingu og tæknilega hæfileika. Ég er hæstánægður með að Walter hefur samþykkt tækifærið á að koma til United."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.