Laufey Harpa er vinstri bakvörður sem var í liði ársins fyrir frammistöðu sína í fyrra þegar uppeldisfélag hennar, Tindastóll, vann Lengjudeildina og kom sér upp í efstu deild. Nú á dögunum valdi landsliðsþjálfarinn Þorsteinn Halldórsson hana Laufeyju í æfingahóp.
Laufey lék á sínum tíma sex unglingalandsleiki og á alls 86 leiki í deild og bikar fyrir uppeldisfélagið. Hún sýnir í dag á sér hina hliðina.
Laufey lék á sínum tíma sex unglingalandsleiki og á alls 86 leiki í deild og bikar fyrir uppeldisfélagið. Hún sýnir í dag á sér hina hliðina.
Fullt nafn: Laufey Harpa Halldórsdóttir
Gælunafn: Stundum kölluð Laubba eða Láfý
Aldur: Tvítug
Hjúskaparstaða: Í sambandi
Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki: 2015
Uppáhalds drykkur: Vatn
Uppáhalds matsölustaður: Grána Bistro
Hvernig bíl áttu: Skoda Octavia
Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Friends
Uppáhalds tónlistarmaður: Bubbi Morthens
Uppáhalds hlaðvarp: Þarf alltaf að vera grín?
Fyndnasti Íslendingurinn: Pétur Jóhann
Hvað viltu í bragðarefinn þinn: Jarðaber, kiwi og þrist
Hvernig hljómar síðasta sms sem þú fékkst: En þú?
Hvaða liði myndir þú aldrei spila með: Aldrei segja aldrei
Besti leikmaður sem þú hefur mætt: Fanndís Friðriksdóttir
Besti þjálfarinn sem hefur þjálfað þig: Jón Stefán Jónsson
Mest óþolandi leikmaður sem þú hefur mætt:
Sætasti sigurinn: Þegar við unnum ÍA 2-1 með mörkum á 89. og 95. mínútu, sumarið 2019.
Mestu vonbrigðin: Verð að segja að það hafi verið haustið 2020 þegar við gátum ekki spilað síðasta leikinn okkar í deildinni og fengið bikarinn afhentan
Uppáhalds lið í enska: Manchester United
Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru íslensku liði í þitt lið: Karen María Sigurgeirsdóttir
Efnilegasti knattspyrnumaður/kona landsins: Alexandra Jóhannsdóttir
Fallegasti knattspyrnumaðurinn á Íslandi: Hmmmm
Fallegasta knattspyrnukonan á Íslandi: Allar svo fallegar
Besti knattspyrnumaðurinn frá upphafi: Messi
Hver er mesti höstlerinn í liðinu: Anna Margrét
Uppáhalds staður á Íslandi: Skagafjörðurinn langbestur
Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: Þegar einhver dettur um sjálfa sig er alltaf jafn fyndið og skemmtilegt atvik
Ertu með einhverja hjátrú tengda fótbolta: Á leikdegi fer ég alltaf í treyjuna eftir upphitun
Fyrir utan knattspyrnu, fylgist þú með öðrum íþróttum: Já, íslenskum körfubolta og hestaíþróttum
Í hvernig fótboltaskóm spilar þú: Nike
Í hverju varstu/ertu lélegastur í skóla: Verð að segja enska
Vandræðalegasta augnablik: Þegar ég hélt að dómarinn hafi flautað og ég tók boltann upp með höndum
Hvaða þrjá leikmenn tækir þú með þér á eyðieyju: Bryndísi Rut því hún er smiður, Önnu Margréti uppá skemmtunina og Birnu Maríu því hún gæti búið um sár ef við myndum meiða okkur
Sturluð staðreynd um sjálfan þig: Get hreyft eyrun
Hvaða samherji hefur komið þér mest á óvart eftir að þú kynntist honum og af hverju: Murielle Tiernan, því hún er mögnuð mannvera
Hverju laugstu síðast: Það er svo langt síðan að ég man það ekki
Hvað er leiðinlegast að gera á æfingum: Upphitun
Ef þú fengir eina spurningu til að spyrja hvern sem er: Hver yrði spurningin og hvern myndiru spyrja: Myndi spyrja Guð hvenær Covid mun hætta að hafa áhrif á líf okkar
Athugasemdir