Fotbolti.net
03.04.04 - 00:00
Magnús Már Einarsson

KA fær ungverskan markvörð (Staðfest)

Sandor í miðjunni eftir að hafa skrifað undir samning við KA.  Þorvaldur Örlygsson þjálfari liðsins er til hægri og Vignir Þormóðsson formaður knattspyrnudeildar félagsins til vinstri.

Sandor í miðjunni eftir að hafa skrifað undir samning við KA. Þorvaldur Örlygsson þjálfari liðsins er til hægri og Vignir Þormóðsson formaður knattspyrnudeildar félagsins til vinstri.

Canon

Mynd: ka-sport.is/fot

KA samdi í dag við ungverskan markvörð að nafni Matus Sandor en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins. Matus er 27 ára gamall og 187 cm. á hæð en hann hefur leikið í efstu og næst efstu deildunum í Finnlandi undanfarin þrjú ár. Hann kom til landsins á þriðjudag og hefur verið síðan þá til reynslu en hann á einhverja leiki að baki með U18 ára landsliði Ungverja. Hann fer utan á morgun og kemur aftur 3. maí og mun leika með KA næsta sumar en samningurinn gildir út næsta tímabil segir á heimasíðu KA.
Síðastliðið sumar lék danski markvörðurinn Sören Byskov í marki KA en samningurinn við hann var ekki framlengdur. Árni Kristinn Skaftason hefur staðið í marki KA í deildabikarnum að undanförnu og hefur staðið sig vel samkvæmt heimasíðu Akureyraliðsins svo að ljóst er að Sandor gengur ekki beint inn í byrjunarliðið án fyrirhafnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.