Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 03. apríl 2021 20:26
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Þýskaland: Thuram sá um Freiburg
Marcus Thuram.
Marcus Thuram.
Mynd: Getty Images
Borussia M. 2 - 1 Freiburg
0-1 Roland Sallai ('10 )
1-1 Marcus Thuram ('53 )
2-1 Marcus Thuram ('60 )

Franski framherjinn Marcus Thuram var hetja Borussia Mönchengladbach í lokaleik dagsins í þýsku úrvalsdeildinni.

Gladbach tók á móti Freiburg og það voru gestirnir sem komust yfir eftir aðeins tíu mínútna leik.

Staðan var 0-1 í hálfleik en eftir stundarfjórðung í seinni hálfleik var hún orðin 2-1 fyrir Gladbach. Thuram, sem er sonur fyrrum varnarmannsins Lillian Thuram, skoraði bæði mörkin.

Þetta var hörkuleikur en Gladbach náði að landa sigrinum og er núna í sjöunda sæti, fjórum stigum frá Dortmund sem er í fimmta sæti. Freiburg er í níunda sæti.

Önnur úrslit í dag:
Þýskaland: Andre Silva tryggði Frankfurt sigur gegn Dortmund
Þýskaland: Bayern tók risaskref með sigri í leiknum mikilvæga
Athugasemdir
banner
banner