Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 03. apríl 2021 18:28
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Þýskaland: Bayern tók risaskref með sigri í leiknum mikilvæga
Goretzka skoraði eina mark leiksins.
Goretzka skoraði eina mark leiksins.
Mynd: Getty Images
RB Leipzig 0 - 1 Bayern
0-1 Leon Goretzka ('38 )

Bayern München hafði betur gegn RB Leipzig í toppbaráttuslagnum í þýsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Miðjumaðurinn Leon Goretzka kom Þýskalandi á bragðið gegn Íslandi á dögunum og hann kom Bayern yfir gegn RB Leipzig í kvöld. Markið kom á 38. mínútu eftir mjög fínan undirbúning Thomas Muller.

Leipzig átti 11 marktilraunir í leiknum en aðeins tvær þeirra rötuðu á rammann.

Bayern náði að landa sigrinum og tók risaskref í átt að þýska meistaratitlinum. Bayern er núna með sjö stiga forystu á Leipzig á toppi deildarinnar þegar sjö leikir eru eftir.

Önnur úrslit í dag:
Þýskaland: Andre Silva tryggði Frankfurt sigur gegn Dortmund
Athugasemdir
banner
banner