BATE lék sinn fyrsta leik eftir landsleikjahlé í dag. Nafn Willums Þórs Willumssonar var ekki að sjá á leiksskýrslu BATE og má ætla að hann hafi verið hvíldur eftir landsleikjatörnina.
BATE vann 3-2 sigur á FC Gomel og skoraði Shakhboz Umarov tvö marka BATE í leiknum. Þetta var liður í 3. umferð deildarinnar í Hvíta-Rússlandi og er BATE með sjö stig.
BATE vann 3-2 sigur á FC Gomel og skoraði Shakhboz Umarov tvö marka BATE í leiknum. Þetta var liður í 3. umferð deildarinnar í Hvíta-Rússlandi og er BATE með sjö stig.
Í undanúrslitum þýska bikarsins vann Eintracht Frankfurt 2-1 sigur á Freiburg.
Alexandra Jóhannsdóttir var á bekknum hjá Frankfurt en kom ekki við sögu. Alexandra hefur verið að glíma við meiðsli í læri en er að snúa til baka.
Frankfurt mætir annað hvort Wolfsburg eða Bayern Munchen í úrslitaleik bikarsins.
Alexandra í treyju Breiðabliks í fyrra
Athugasemdir