Fotbolti.net
13.09.26 - 16:31
Víðir Sigurðsson

Þriðji yngstur í sögu efstu deildar

Guðmundur Brynjar Wehmeier kom inn á hjá Val gegn Þór í dag.

Guðmundur Brynjar Wehmeier kom inn á hjá Val gegn Þór í dag.

Canon

Mynd: Valur

Guðmundur Brynjar Wehmeier, fjórtán ára strákur úr 4. flokki Vals, kom inn á sem varamaður í leik liðsins gegn Þór á Hlíðarenda í Bestu deildinni í dag og er þar með þriðji yngsti leikmaðurinn í sögu deildarinnar.

Valsmenn hafa nú teflt fram tveimur 14 ára strákum í deildinni í ár en Novak Tufegdzic setti nýtt aldursmet 18. júlí þegar hann var í byrjunarliði Hlíðarendaliðsins gegn Fram.
Guðmundur Brynjar, sem er uppalinn hjá ÍR en kom til Vals í fyrra, kom inn á sem varamaður á 90. mínútu fyrir Lúkas Loga Heimisson.

Hann er 14 ára og 232 daga gamall, 206 dögum eldri en Novak var þegar hann setti metið í leiknum við Fram.

Þar með hafa alls sjö leikmenn leikið 14 ára gamlir í deildinni, frá því Eyjamaðurinn Eyþór Orri Ómarsson gerði það fyrstur árið 2018. Þrír þeirra hafa leikið á þessu ári en sjömenningarnir eru eftirtaldir.

14 ára + 26 Novak Tufegdzic, Valur, 2026
14 ára + 147 Alexander Rafn Pálmason, KR, 2024
14 ára + 232 Guðmundur Brynjar Wehmeier, Valur, 2026
14 ára + 318 Gils Gíslason, FH, 2022
14 ára + 320 Arnar Breki Björnsson, Stjörnunni, 2026
14 ára + 330 Eyþór Orri Ómarsson, ÍBV, 2018
14 ára + 343 Alexander Máni Guðjónsson, Stjörnunni, 2024
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.