Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 03. maí 2021 15:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Róbert Orri með á móti Leikni - Elli áfram meiddur
Róbert Orri
Róbert Orri
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þeir Davíð Örn Atlason, Elfar Freyr Helgason og Róbert Orri Þorkelsson léku ekki með Breiðablik gegn KR í gær. KR vann leikinn 0-2 á Kópavogsvelli.

Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Breiðabliks, var spurður út í Davíð Örn í viðtali eftir leik.

„Hann er á batavegi, ómögulegt að segja hversu langt er í hann, vonandi styttist í það," sagði Óskar við Arnar Laufdal Arnarsson, fréttaritara Fótbolta.net, í gærkvöldi.

Undirritaður var forvtinn með stöðuna á þeim Elfari og Róberti og hafði samband við Óskar í dag.

„Elli er bara meiddur og Róbert Orri verður klár á móti Leikni," sagði Óskar.

„Ég get ekki sagt til um hvað það er langt í Ella. Það er algjörlega óljóst, það er búin að vera sama staðan á honum í að verða tvær vikur. Þetta verður skoðað betur í vikunni."

Breiðablik heimsækir Leikni í 2. umferð Pepsi Max-deildarinnar næsta laugardag.


Elli Helga
Óskar Hrafn: Ég er svekktur út í sjálfan mig
Athugasemdir
banner
banner
banner