Fotbolti.net
03.05.26 - 17:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Í samstarfi við styrktaraðila

Sterkasta lið 2. umferðar - Verður þetta ár nýliðanna?

Agla María hefur farið frábærlega af stað.

Agla María hefur farið frábærlega af stað.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það eru núna tvær umferðir búnar í Bestu deild kvenna og mikið verið um áhugaverð úrslit.

Ríkjandi Íslandsmeistarar Breiðabliks sitja á toppnum með fullt hús stiga og hafa ekki enn fengið á sig mark. Agla María Albertsdóttir hefur verið frábær í upphafi móts og er aftur í liði umferðarinnar. Sara Svanhildur Jóhannsdóttir átti góðan leik fyrir Fram á Kópavogsvelli.
Sterkasta lið 1. umferðar - Best gegn gömlu félögunum
TENGT EFNI

Sterkasta lið 1. umferðar - Best gegn gömlu félögunum



Grindavík/Njarðvík skrifaði söguna með því að vinna sinn fyrsta leik í efstu deild, 2-1 gegn Þór/KA. Natasha Anasi er aftur í liði umferðarinnar og Sigríður Emma Fanndal Jónsdóttir var á skotskónum. Gylfi Tryggvason er þjálfari umferðarinnar. Genevieve Crenshaw kom inn í mark Grindavík/Njarðvík í þessum leik og var mjög öflug.

Hinir nýliðarnir í ÍBV gerðu sér þá lítið fyrir og unnu 3-2 endurkomusigur á Víkingum eftir að hafa lent undir. Allison Clark var frábær í leiknum og Olga Sevcova sömuleiðis. Jón Óli Daníelsson gerði þá sterkt tilkall til að vera þjálfari umferðarinnar.

Verður þetta ár þar sem báðir nýliðarnir halda sér uppi?

Þá vann Stjarnan 2-0 sigur á Val þar sem Andrea Mist Pálsdóttir og Birna Jóhannsdóttir spiluðu vel og Þróttur vann glæsilegan sigur á FH á heimavelli. Mist Funadóttir var maður leiksins og Kayla Rollins var hetjan.
Natasha er að sýna hvað hún er góð.

Natasha er að sýna hvað hún er góð.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gylfi er þjálfari umferðarinnar.

Gylfi er þjálfari umferðarinnar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Uppbótartíminn - Sögulegur sigur og viðvörunarbjöllur hringja í Hafnarfirði

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.