Fotbolti.net
03.06.04 - 10:41
Magnús Már Einarsson

Muzzy Izzet til Birmingham (Staðfest)

Muzzy Izzet til Birmingham (Staðfest)
Canon
Birmingham hefur gengið frá samningum við Muzzy Izzet miðjumann Leicester City. Izzet sem að er 29 ára tyrkneskur landsliðsmaður mun koma frítt til Birmingham þann fyrsta júlí þegar að samningur hans við Leicester rennur út.
Izzet kom til Leicester árið 1996 á 800 þúsund pund frá Chelsea. Hann lék alls 342 leiki með Leicester og skoraði í þeim 47 mörk.

Birmingham ætlar greinilega að setja markið hátt því að auk Izzet hefur liðið keypt Emilie Heskey frá Liverpool og ekki er ólíklegt að fleiri leikmenn fari til Birmingham í sumar.

Leicester hinsvegar er nú að missa Izzet en í gær missti liðið skoska sóknarmanninn Paul Dickov og ljóst er að fleiri leikmenn eru á förum frá liðinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.