Fotbolti.net
03.06.04 - 16:40
Magnús Már Einarsson

Santini tekur við Tottenham eftir EM (Staðfest)

Santini tekur við Tottenham eftir EM (Staðfest)
Canon
Jacques Santini landsliðsþjálfari Frakka tekur við stjórastarfi Tottenham um leið og þáttöku Frakka á EM í Portúgal lýkur í sumar en Fótbolti.net er einna fyrstur miðla í heimi með þessa frétt. Framtíð Santini hefur verið í óvissu því að samningur hans við Frakka rennur út eftir EM og hefur honum ekki ennþá verið boðinn nýr samningur svo að hann ákvað að taka tilbði Tottenham.
Santini sem að er fyrrum stjóri Lyon tekur við starfinu af David Pleat sem að var tímabundið stjóri á síðasta tímabili eftir að Glenn Hoddle tók pokann sinn í september síðastliðnum. Santini hefur náð fínum árangri með Frakka og fór liðið taplaust í undankeppni EM.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.