Einn greindist með kórónaveiruna hjá félögunum í ensku úrvalsdeildinni í þessari viku. Verið er að skoða leikmenn og starfsmenn í deildinni reglulega.
1197 leikmenn og starfsmenn félaganna 20 fóru í próf í vikunni og einn aðili reyndist vera með veiruna.
Tottenham hefur staðfest að sá aðili kemur úr þeirra herbúðum en ekki hefur verið sagt hvort um sé að ræða leikmann eða starfsmann.
1130 leikmenn og starfsmenn fóru í kórónuveirupróf fyrir síðustu helgi og þá komu öll prófin til baka neikvæð.

Stefnt er á að hefja keppni í ensku úrvalsdeildinni á ný eftir tvær vikur, miðvikudaginn 17. júní. Búast má við að leikjaplanið komi í dag eða á morgun.
Athugasemdir