Fotbolti.net
12.09.26 - 13:06
Brynjar Ingi Erluson
Byrjunarliðsfréttir

Byrjunarliðin í enska: Þrjár breytingar hjá Liverpool - Á bekknum sólarhring eftir bílveltu

Ryan Gravenberch er í byrjunarliði Liverpool

Ryan Gravenberch er í byrjunarliði Liverpool

Canon

Mynd: EPA

Fimm leikir í 4. umferð ensku úrvalsdeildarinnar hefjast klukkan 14:00 í dag.
Chelsea tekur á móti nýliðum Hull City á Stamford Bridge og Xabi Alonso gerir fjölmargar breytingar frá 6-3 sigrinum á Leeds í deildabikarnum á dögunum. Aðeins tvær breytingar eru þó frá 2-1 tapinu gegn Arsenal í síðasta deildarleik, en Levi Colwill og Malo Gusto koma inn fyrir Maxence Lacroix og Josh Acheampong.

Hull er nánast með sama lið og gerði jafntefli við Aston Villa um síðustu helgi, en Matt Crooks kemur inn á miðjuna fyrir Lucas Gourna-Douath. Sorba Thomas, sem velti bíl sínum í gær, er á bekknum og virðist hafa sloppið ómeiddur.

Liverpool tekur á móti Fulham og gerir þrjár breytingar frá 2-1 sigrinum á Atlético Madríd í Meistaradeildinni. Kostas Tsimikas leysir Milos Kerkez af í vinstri bakverðinum, Ryan Gravenberch kemur inn á miðjuna fyrir Alexis Mac Allister og Victor Munoz tekur sæti Rio Ngumoha á kantinum.

Unai Emery gerir eina breytingu á liði Aston Villa gegn Nottingham Forest og kemur Ross Barkley inn í liðið. Hjá Forest byrjar Daniel Munoz í fyrsta sinn undir stjórn Olivers Glasner og Ousmane Diomande kemur einnig inn í liðið.

Bournemouth stillir upp óbreyttu liði gegn Brentford en gestirnir gera fjórar breytingar. Jannik Schuster, Aaron Hickey, Yehor Yarmoliuk og Jaidon Anthony koma allir inn í liðið.

Chelsea: Dibu Martínez; Fofana, Gusto, Colwill; Pedro Neto, James, Lavia, Hato; Rogers, Palmer; Joao Pedro

Hull: Tzolakis; Ajayi, Egan, Mendy; Coyle, Slater, Crooks, Giles; Belloumi, Stroud; McBurnie.



Aston Villa: Suzuki; Wan-Bissaka, Lindelöf, Pau Torres, Maatsen; Kamara, Barkley; McGinn, Brannigan, Hemmings; Jackson

Nottingham Forest: Sels; Aina, Diomande, Murillo; Muñoz, Schlager, McAtee, Williams; Gibbs-White, Ndoye; Delap.



Bournemouth: Petrovic; Smith, Hill, António Silva, Truffert; Adams, Scott; Rayan, Kluivert, Tavernier; Evanilson

Brentford: Kelleher; Hickey, Ajer, Schuster, Lewis-Potter; Janelt, Sangaré; Anthony, Yarmolyuk, Schade; Thiago.



Crystal Palace: Benítez; Ahanor, Disasi, Richards; Khalaili, Timber, Kamada, Wharton, Mitchell; Yeremy Pino,Strand Larsen

Ipswich: Scherpen; O'Shea, Diop, Greaves, Davis; Palacios, Lukic; Fatawu, Enciso, Clarke; Emersonn.



Liverpool: Alisson; Araújo, Jacquet, Van Dijk, Tsimikas; Gravenberch, Szoboszlai; Víctor Muñoz, Wirtz, Barcola; Isak

Fulham: Leno; Castagne, Affengruber, Bassey, Robinson; Berge, Charles; Iwobi, King, Bobb; Gonzalo García.
Sorba Thomas er á bekknum hjá Hull aðeins nokkrum dögum eftir að hafa velt bíl sínum

Sorba Thomas er á bekknum hjá Hull aðeins nokkrum dögum eftir að hafa velt bíl sínum

Canon

Mynd: Hull City

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.