Fotbolti.net
12.09.26 - 13:56
Brynjar Ingi Erluson

Emilía skoraði tvö og var hetja Leipzig - Sandra María lagði upp í sigri

Emilía Kiær skoraði tvennu fyrir Leipzig

Emilía Kiær skoraði tvennu fyrir Leipzig

Canon

Mynd: Helgi Þór Gunnarsson

Kvennaboltinn
Emilía Kiær Ásgeirsdóttir var í hörkuformi er RB Leipzig vann frábæran 2-1 sigur á Nurnberg í þýsku deildinni í dag.
Landsliðskonan hafði beðið þolinmóð eftir fyrsta deildarmarki sínu á tímabilinu og uppskeran varð tvö mörk þegar loksins losnaði um hana.

Hún opnaði markareikninginn á 20. mínútu og bætti við öðru þegar stundarfjórðungur var eftir. Það reyndist mikilvægt því Nurnberg minnkaði muninn undir lokin en Leipzig hélt út og vann 2-1.

Þetta var fyrsti sigur Leipzig á tímabilinu og er liðið í níunda sæti með fjögur stig eftir fjóra leiki.

Sandra María Jessen var í byrjunarliði Kölnar í fyrsta sinn á tímabilinu og gaf jafnframt sína fyrstu stoðsendingu þegar hún lagði upp þriðja markið í 3-0 sigri á Union Berlín. Köln er í þriðja sæti með níu stig.

Sunneva Hrönn Sigurvinsdóttir byrjaði hjá FCK í 4-2 tapi fyrir AGF í botnslag dönsku úrvalsdeildarinnar. FCK er í næstneðsta sæti með sex stig en AGF náði í sín fyrstu stig og er áfram á botninum með þrjú.

Emelía Óskarsdóttir lék síðasta stundarfjórðunginn í 2-1 sigri Köge á Fortuna Hjörring, en Köge er á toppnum með 18 stig eftir sjö leiki.

Eyrún Embla Hjartardóttir byrjaði hjá varaliði Häcken sem tapaði 2-0 fyrir Umeå í sænsku B-deildinni. Häcken er í neðsta sæti með sjö stig.
Sandra lagði upp þriðja mark Köln

Sandra lagði upp þriðja mark Köln

Canon

Mynd: Köln

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.