Fotbolti.net
12.09.26 - 13:23
Brynjar Ingi Erluson

Mbappe: Enginn átti betra tímabil en ég

Kylian Mbappe er fullur sjálfstrausts

Kylian Mbappe er fullur sjálfstrausts

Canon

Mynd: EPA

Franski landsliðsfyrirliðinn Kylian Mbapp hefur mikið álit á sjálfum sér og telur sig eiga góða möguleika á að vinna hin eftirsóttu Ballon d'Or verðlaun í ár.
Mbappe er sannfærður um að enginn hafi átt betra tímabil en hann og hefur trú á að verða valinn besti leikmaður ársins.

Tölurnar hjá honum voru vissulega glæsilegar, 42 mörk og sjö stoðsendingar í öllum keppnum, en Real Madrid fór titlalaust í gegnum tímabilið og titlar vega gjarnan þungt í kjörinu. Til samanburðar skoraði Harry Kane 61 mark og gaf sjö stoðsendingar er Bayern vann þrennuna í Þýskalandi.

Þeir eru þó ekki einir í baráttunni því Rodri var valinn besti leikmaður HM í sumar og Michael Olise átti stórkostlegt tímabil með Bayern, þar sem hann og Kane náðu frábærlega saman.

„Það er ekki hægt að nefna einn leikmann sem átti betra tímabil en ég og því hef ég trú á að geta unnið,“ sagði Mbappe í viðtali við L'Equipe.

Frakkinn hefur verið gagnrýndur fyrir að vera gráðugur fyrir framan markið og hugsa of mikið um sjálfan sig en vísar því alfarið á bug.

„Ég er með þráhyggju fyrir því að skora því það er nákvæmlega það sem ég á að gera. Ég er ekki eigingjarn, hvernig get ég verið það þegar ég er stoðsendingahæsti leikmaður í sögu franska landsliðsins?“ sagði Mbappe.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.