03.07.04 - 06:28
Magnús Már Einarsson
Cambiasso til Inter (Staðfest)

Cambiasso kominn í búning Inter.


Cambiasso kominn í búning Inter.

Inter Milan hefur gengið frá kaupum á argentíska miðjumanninnum Esteban Matias Cambiasso. Hinn 24 ára gamli Cambiasso kemur frítt til Inter frá Real Madrid en stórliðið frá Spáni endurnýjaði ekki samning sinn við kappann. Cambiasso hefur skrifað undir fjögurra ára samning við Inter en hann telst ekki "Útlendingur" í Serie A þar sem að hann hefur ítalskt vegabréf.
Svo gæti farið að hann muni leika undir stjórn Roberto Mancini hjá Inter en Mancini sem að er stjóri Lazio á nú í viðræðum um að taka við Inter.
