03.07.04 - 07:32
Magnús Már Einarsson
Mjallby til Levante (Staðfest)




Nýliðar Levante í La Liga á Spáni hafa fengið Johan Mjallby frítt frá Glasgow Celtic. Mjallby sem að er 33 ára hefur leikið undanfarin sex tímabil með Celtic og unnið deildina þrisvar með félaginu og bikarinn tvisvar. Á nýliðnu tímabili átti Mjallby við smá hnémeiðsli að stríða og lék aðeins ellefu deildarleiki með Celtic. Þessi fyrrum leikmaður Aik Solna vonast til þess að reynsla sín hjálpi Levante sem að er í fyrsta sinn í La Liga í 40 ár.
