03.07.04 - 16:26
Cheyrou lánaður til Marseille (Staðfest)

Franski miðvallarleikmaðurinn Bruno Cheyou hefur verið lánaður til Marseille. Hann verður þar út tímabilið og þá hefur franska liðið forkaupsrétt á honum. Cheyrou hefur ekki náð að sína sitt rétta andlit hjá Liverpool síðan hann kom frá Lille fyrir 3,7 milljónir punda fyrir tveimur árum.
Cheyrou sagði þetta um skiptin: "Ég varð að vega og meta það hvort ég vildi starfa með nýja stjóranum eða hvort ég vildi róa á önnur mið. Svo ég ákvað að breyta til.
Jose Anigo (Þjálfari Marseille) sagði mér að hann vildi virkilega fá mig í liðið sitt. Það var gott að vita að einhver þjáfari setti traust sitt á mig. Í tvö ár hefur það ekki verið þannig hjá mér."
Anigo sagði svo þetta um Cheyrou: "Hann hefur góðan vinstri fót, hann er kappsamur og getur skorað með sköllum. Hann er að leita að nýjum stað eftir tvö ár hjá Liverpool og það er gott að heyra baráttuorð hans."