03.07.04 - 18:57
Mendieta til Middlesbrough (Staðfest)

Gaizka Mendieta er nú formlega genginn til liðs við enska úrvalsdeildarliðið Middlesbrough eftir að hafa verið þar á láni allt síðasta leiktímabil frá ítalska liðinu Lazio. Mendieta skrifaði undir fimm ára samning við Middlesbrough.
Eftir frábært tímabil hjá Boro sem að unnu Deildabikarinn er hann loksins búinn að færa sig endanlega yfir til Englands.
Mendieta kom til Lazio árið 2001 fyrir 28 milljónir punda frá spænska liðinu Valencia og Lazio hefur reynst erfitt að fullborga alla upphæðina.
En nú í vikunni borguðu þeir 12 milljónirnar sem eftir voru með því að selja Bernardo Corradi og Stefano Fiore til Valencia og því gátu þeir leyft Mendieta að fara frítt.
Ljóst er að Mendieta verður mikill liðstyrkur fyrir Middlesbrough og ljóst er að þeir ætla að gera stóra hluti í vetur.