Nagelsmann hefur sagt upp (Staðfest) - Tekur Klopp við?

Nagelsmann er hættur með þýska landsliðið.

Mynd: EPA

Þjóðverjar vilja að Klopp taki við.

Julian Nagelsmann hefur sagt starfi sínu lausu sem landsliðsþjálfari Þýskalands, eftir vonbrigðin á HM. Paragvæ sló Þýskaland út eftir vítakeppni í 32-liða úrslitum.
Í gær var greint frá því að Nagelsmann hefði farið á fund með stjórn þýska fótboltasambandsins þar sem honum hafi verið boðið að segja upp, ef hann gerði það ekki yrði hann rekinn.

TENGT EFNI
Boðið að segja af sér - Var með kærustuna með sér á mótinu
Hafa óskað eftir því að ræða við Klopp
Það er ekkert leyndarmál að Jurgen Klopp er efstur á óskalista Þjóðverja. Klopp sagði í fjölmiðlum eftir tapið gegn Paragvæ að ekki væri rétti tíminn til að ræða um framtíð sína. Þýskir fjölmiðlar segja að þýska fótboltasambandið hafi þegar óskað eftir viðræðum við Klopp.
Bernd Neuendorf forseti þýska fótboltasambandsins þakkar Nagelsmann fyrir störf sín síðan hann tók við í september 2023 „Hann er vinnusamur og metnaðarfullur einstaklingur sem er í miklum metum hjá okkur," segir Neuendorf í yfirlýsingu.
Nagelsmann, sem er 38 ára, er fyrrum stjóri Bayern München. Samningur hans var út 2028 en hann og þýska liðið fengu mikla gagnrýni fyrir vonbrigðin á HM sem nú stendur yfir. Liðið tapaði gegn Ekvador í lokaumferð riðilsins áður en það féll svo úr leik gegn Paragvæ.